17.01.2012
Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi
Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2011 var haldinn 30. nóvember sl., og má segja að með honum hafi formlega lokið starfseminni klúbbsins á því ári sem nú er að ljúka.15.11.2011
Dalbúi - Aðalfundur
AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA Sal Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin, miðvikudaginn 30. nóvember 2011 kl. 17:15 – 19:0019.10.2011
Vetrargolf Dalbúa
Vetrargolf Dalbúa Velli golfklúbbsins Dalbúa hefur nú verið lokað eftir vertíð sumarsins, eins og þeir félagar hafa séð, sem hafa lagt leið sína í Miðdal undanfarið. Líkt og síðustu ár má þó búast við að félagar hafi áhuga á að spila völlinn í vetur, þegar veður leyfir, og á síðasta vetri mátti sjá þó nokkra félagsmenn fara hring á vellinum og þannig spila vetrargolf við oft ágætar aðstæður.19.09.2011
Lindarmótið 17. september - úrslit
Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 17. september í björtu og góðu veðri – eins konar stund milli vondra veðurdaga báðum megin við, eins og mótanefnd hafði raunar samið um við æðri máttarvöld. Þátttakendur voru alls 36 að þessu sinni, fullt á allar brautir, og góður endapunktur á góðum mótum sumarsins hjá klúbbnum.15.09.2011
Lindarmótið og lokahóf 17. september
Við viljum minna félagsmenn aftur á Lindarmótið, síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa sem haldið verður laugardaginn 17. september.13.09.2011
Lindarmótið og lokahóf 17. september
Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa verður haldið laugardaginn 17. september. Hér er um að ræða hið sívinsæla Lindarmót, sem veitingahúsið Lindin á Laugarvatni stendur að með klúbbnum. Lokahóf sumarstarfstarfsins fer síðan fram um kvöldið í Lindinni.29.08.2011
Gunnarsmótið 2011
Gunnarsmótið 2011 fór fram sunnudaginn 28. ágúst í mildu veðri, logni og örlitlum sudda en þrátt fyrir það var veður var hið besta til golfiðkunar og keppendur náðu góðum árangri.23.08.2011
VINNUDAGUR DALBÚA LAUGARDAGINN 27. ÁGÚST
Það styttist í haustið og enn eru mörg óunnin verk á vellinum sem þarf að klára áður en sumarið er úti. Því hefur verið ákveðið að boða til vinnudags laugardaginn 27. ágúst kl. 11.22.08.2011
Gunnarsmótið 28. ágúst
Gunnarsmótið, sem haldið er til heiðurs Gunnari G. Schram, fyrsta formanni Dalbúa, fer að þessu sinni fram sunnudaginn 28. ágúst, og er öllum opið. Mótið er punktakeppni með fullri forgjöf, og er skráning hafin.16.08.2011
Ólafur Loftsson í beinni útsendingu á SkjáGolfi
Ólafur Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum ritaði nýjan kafla í golfsögu Íslands. Ólafur sem undanfarin ár hefur stundað háskólanám vestanhafs vann sér þátttökurétt á Wyndham Championship. Mótið er hluti af PGA mótaröðinni sem er sterkasta golfmótaröð veraldar.16.08.2011
Styrktarmót GD 2011 – úrslit
Styrktarmót GD fór fram laugardaginn 13. ágúst og tókst í alla staði vel. Veður var hið besta, sól og hiti, en vaxandi vindur eftir því sem á leið gerði sumum keppendum erfitt að hemja boltann eins og til stóð.08.08.2011
Styrkarmót GD laugardaginn 13. ágúst
Árlegt Styrktarmót GD fer fram laugardaginn 13. ágúst, en hér er um að ræða sérstakt fjáröflunarmót sem er ætlað til að afla fjár til áframhaldandi endurbóta á vellinum í Miðdal.08.08.2011
Draumur Dalbúans - lokastaða
Þá er lokið öllum níu leikdögum í mótaröðinni Draumur Dalbúans, og lokastaðan orðin ljós, og tafla yfir hana fylgir hér með.04.08.2011
Meistaramóti GD 2011 í holukeppni aflýst
Mótanefnd þykir miður að þurfa að tilkynna að fyrirhuguðu meistaramóti GD í holukeppni 2011 er hér með aflýst.27.07.2011
Meistaramót GD 2011 í holukeppni
Meistaramót í holukeppi er vinsælt keppnisform í flestum golfklúbbum hér á landi, og fer yfirleitt fram síðari hluta sumars og jafnvel fram á haust, þegar meistaramót í höggleik eru yfirstaðin.26.07.2011
Meistaramót Dalbúa 2011 – úrslit
Meistaramót Golfklúbbsins Dalbúa 2011 fór fram í við gjörólíkar aðstæður keppnisdagana tvo. Fyrri daginn – laugardaginn 23. júlí – var blíðskaparveður, sól, hiti og hægviðri. Síðari keppnisdaginn, sunnudaginn 24. júlí, var rok og rigning nær allan keppnistímann, þó aðeins drægi úr inn á milli.23.07.2011
Meistaramótið-rástímar á morgun
Rástímar í meistaramóti GD sunnudaginn 24. júlí er að finna í mótaskrá á golf.is, en þeir eru sem hér segir:22.07.2011
Rástímar í Meistaramótið!
Erfiðlega hefur gengið að setja rástíma laugardagsins inn á golf.is eru þeir eftirfarandi...19.07.2011
Meistaramót Dalbúa 23. og 24. júlí: Skráning í fullum gangi!
Eins og fram hefur komið í fyrri frétt fer meistaramót Golfklúbbsins Dalbúa 2011 fram helgina 23. og 24. júlí, og samkvæmt hefð verður leikinn höggleikur án forgjafar. Völlurinn er stöðugt að taka á sig betri mynd eftir erfitt vor, og verður í sínu besta formi um komandi helgi.18.07.2011
Gróðursetning á skógargjöf hafin
Eins og fram hefur komið hefur golfklúbburinn Dalbúi fengið að gjöf um 300 trjáplöntur, sem geta breytt vellinum í Miðdal í framtíðinni með áhrifamiklum hætti.11.07.2011
Meistaramót Dalbúa fer fram 23. og 24. júlí
Meistaramót Golfklúbbsins Dalbúa fer fram helgina 23. og 24. júlí, og samkvæmt hefð verður leikinn höggleikur án forgjafar. Hefur mótinu verið seinkað um eina viku frá því sem upphaflega var áætlað, af tillitsemi við þá félaga sem taka þátt í meistaramótum annarra golfklúbba, sem fara fram í vikunni 11.-17. júlí.06.07.2011
Úrslit í Opna Carlsbergmóti GD 2011
Opna Carlsberg - mótið hefur undanfarin ár verið eitt skemmtilegasta mót ársins hjá Golfklúbbnum Dalbúa og svo var einnig að þessu sinni, þrátt fyrir nokkuð erfiðar aðstæður. Veðrið leit ekki vel út í upphafi, en það var þurrt en vindasamt framan af, og síðan fengu keppendur á sig nokkra rigningu á síðustu holunum.29.06.2011
Opna Carlsberg-mótið 2. júlí
Opna Carlsberg - mótið hefur undanfarin ár verið eitt skemmtilegasta mót ársins hjá Golfklúbbnum Dalbúa og er stefnt að því að svo verði einnig í ár. Á mótinu verður að þessu sinni spilaður höggleikur með fullri forgjöf og punktakeppni, og eru glæsilegir vinningar mótsins í boði Carlsberg.27.06.2011
Golfklúbburinn Dalbúi fær höfðinglega gjöf – heilan skóg til gróðursetningar
Golfklúbburinn Dalbúi hefur fengið höfðinglega gjöf, sem getur gert mögulegt að breyta vellinum í Miðdal í framtíðinni með áhrifamiklum hætti. Um er að ræða 300 gróskumiklar trjáplöntur – greni, furu og lerki.27.06.2011
Jónsmessumót GD 24. júní - úrslit
Hið sívinsæla Jónsmessumót Dalbúa fór fram að kvöldi Jónsmessu föstudaginn 24. júní. Líkt og síðustu ár var spilaður snærisleikur, níu holur, þannig að spilarar fengu snærisspotta í hlutfall við forgjöf og gátu þannig sparað sér högg eða komið sér úr erfiðum aðstæðum.21.06.2011
Framfarabikar Dalbúa
Stjórn Golfklúbbsins Dalbúa ákvað á fyrsta fundi sínum á þessu ári þann 16. febrúar sl. að veita í sumar í fyrsta sinn sérstakan „Framfarabikar Dalbúa“ þeim félagsmanni sem bætir árangur sinn hvað mest á golftímabilinu 2011.20.06.2011
Jónsmessumót Dalbúa föstudaginn 24. júní – snærisleikur
Jónsmessumót Dalbúa fer fram næstkomandi föstudagskvöld, 24. júní, á sjálfri Jónsmessunni. Að venju verða spilaðar 9 holur og hefst mótið kl. 20:00. Eins og áður verða léttleiki og fjör einkunnarorð mótsins, og félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og spila einstakt golf í góðum hópi.15.06.2011
MBT / Veggsport mótið 12. júní-úrslit
Fyrsta stórmót sumarsins fór fram á vellinum í Miðdal sunnudaginn 12. júní, á hvítasunnudag, í blíðskaparveðri. Þátttaka í mótinu var að venju góð, en yfir 30 manns spiluðu 18 holur í mótinu, sem að þessu sinni var leikið sem punktakeppni.08.06.2011
Draumur Dalbúans-föstudagsmótaröð GD sumarið 2011
Ný mótaröð verður tekin upp í sumar, og sem fyrr er hún hugsuð sem sérstök skemmtun fyrir klúbbfélaga, sem þeir geta tekið þátt í að vild yfir allt sumarið. Engin sérstök skráning er í mótin, og engin þátttökugjöld. Spilað er á föstudögum frá 10. júní til 6. ágúst, 9 mót samtals. Keppendur spila á eigin vegum 9 holu hring, a.m.k. tveir saman; skorkortum með undirritun leikmanns og ritara (og skráðri forgjöf) skal skilað í klúbbhús (póstkassa) strax að leik loknum á föstudegi, og ritari klúbbsins sér síðan um að halda skrá yfir hvernig gengur.07.06.2011
MBT/Veggsport mótið 12. júní
Fyrsta reglulega mót sumarsins 2011 hjá Golfklúbbnum Dalbúa verður haldið sunnudaginn 12. júní og hefst kl. 10:00. Mótið verður punktakeppni og glæsileg verðlaun í boði frá MBT og Veggsports, en nánari upplýsingar um vöruna er að finna á www.MBT.is17.05.2011
Vinnudagur í Miðdal
Vinnudagur Golfklúbbsins Dalbúa var haldinn laugardaginn 14. maí, og mætti vaskur hópur félagsmanna og vann gott starf við að koma sem flestu í gott horf eftir veturinn. Veður var þokkalegt, fremur svalt en vor í lofti.10.05.2011
Vinnudagur Dalbúa laugardaginn 14. maí
Nú er vorið örugglega komið og því styttist í golfvertíðina hjá Dalbúa í Miðdal. Það er því kominn tími til að huga að vinnudegi, sem að þessu sinni verður haldinn laguardaginn 14. maí, og hefst kl. 10:00.16.04.2011
Félagsgjöld
Kæru félagsmenn! Nú ættu allir að hafa fengið bréf varðandi félagsgjöld fyrir árið 2011. Við hvetjum alla félagsmenn til að greiða árgjaldið sem fyrst til að greiða fyrir framkvæmdum og gera starf klúbbsins öflugra.16.03.2011
Mótaskrá 2011
Mótaskrá sumarsins er nú komin inn á heimasíðuna okkar, og einnig er hægt að nálgast frekari upplýsingar um hin ýmsu mót á www.golf.is, þar sem allar upplýsingar liggja fyrir31.01.2011
Aðalfundur Dalbúa 2010
Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2010 var haldinn fimmtudaginn 9. desember í sal Rafiðnaðarsambandsins að Stórhöfða 31.04.01.2011
Gleðilegt nýtt ár!
Kæru Dalbúar! Við viljum óska öllum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegs nýs árs með þökk fyrir það gamla.06.10.2010
Golfsumar Dalbúa 2010
Golfsumarið 2010 fór snemma af stað og er búið að vera ótrúlega gott við okkur í Miðdal. Veðurblíðan hefur verið með eindæmum, mikið verið spilað á vellinum og þátttaka félagsmanna í fjölbreyttum og skemmtilegum golfmótum Dalbúa hefur verið með ágætum.23.09.2010
Samkaup/strax mótaröðin 2010 – úrslit
Samkaup / strax mótaröðin var hugsuð sem sérstök skemmtun fyrir klúbbfélaga, og var einkum ætluð til að hvetja félagsmenn til að spila völlin eins oft og kostur væri.13.09.2010
Lindarmótið og lokahóf 18. ágúst
Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa verður haldið laugardaginn 18. september. Hér er um að ræða hið sívinsæla Lindarmót, sem veitingahúsið Lindin á Laugarvatni stendur að með klúbbnum. Lokahóf sumarstarfsins fer síðan fram um kvöldið í Lindinni.02.09.2010
Gunnarsmótið 29. ágúst-úrslit
Alls voru 37 þátttakendur í mótinu eða sami fjöldi og tók þátt í því á síðasta ári, og var ræst út á öllum teigum samtímis.24.08.2010
Gunnarsmótið 29. ágúst
Gunnarsmótið, sem haldið er til heiðurs Gunnari G. Schram, fyrsta formanni Dalbúa, fer að þessu sinni fram sunnudaginn 29. ágúst, og er öllum opið. Mótið er punktakeppni með fullri forgjöf, og er skráning hafin.12.08.2010
MIÐDALSMÓTIÐ - 2010 Hilmar Þorkelsson Meistari FBM.
Miðdalsmótið, golfmót Félags bókagerðarmanna fór fram á golfvelli Dalbúa í Miðdal 7. ágúst. Þetta var í fimmtánda sinn sem við höldum golfmót í Miðdal. Að þessu sinni voru keppendur 21.05.08.2010
B2 – Styrkarmót GD laugardaginn 14. ágúst
B2 – Styrktarmót GD: Þetta verður sérstakt fjáröflunarmót (áður hafa verið haldin firmamót og á síðasta ári sérstakt afmælismót með „Texas Scramble“ fyrirkomulagi á þessum tíma) ætlað til að afla fjár til áframhaldandi endurbóta á vellinum í Miðdal.20.07.2010
Meistaramót Dalbúa – úrslit
Meistaramót Golfklúbbsins Dalbúa fór fram í blíðskaparveðri, sól og hita, helgina 17. og 18. júlí, og var spennandi frá upphafi til enda.14.07.2010
Meistaramót Dalbúa - félagsgjöld
Við viljum benda félagsmönnum á að einungis þeir sem gengið hafa frá árgjaldi til Dalbúa geta tekið þátt í Meistaramóti Dalbúa.08.07.2010
Meistaramót Dalbúa fer fram 17. og 18. júlí
Meistaramót Golfklúbbsins Dalbúa fer fram helgina 17. og 18. júlí, og samkvæmt hefð verður leikinn höggleikur án forgjafar. Mótið er fyrir alla félagsmenn GD.06.07.2010
Helmingi Samkaup / strax mótaraðarinnar lokið – keppnin komin á fullt
Fimmta mótið í Samkaup / strax mótaröðinni fór fram föstudaginn 2. júlí, og þar með er helmingi mótanna lokið.05.07.2010
Úrslit í Opna Carlsbergmóti GD 2010
Opna Carlsberg - mótið hefur undanfarin ár verið eitt skemmtilegasta mót ársins hjá Golfklúbbnum Dalbúa og svo var einnig að þessu sinni. Veðrið lék við keppendur, en að í ár voru 54 golfarar skráðir til leiks í mótinu sem fór fram laugardaginn 3. júlí.29.06.2010
Opna Carlsberg-mótið
Opna Carlsberg - mótið hefur undanfarin ár verið eitt skemmtilegasta mót ársins hjá Golfklúbbnum Dalbúa og er stefnt að því að svo verði einnig í ár. Á mótinu verður að þessu sinni spilaður höggleikur MEÐ forgjöf en einnig punktakeppni MEÐ forgjöf23.06.2010
Hola í höggi á 8. braut
Þær fréttir bárust úr klúbbhúsi Dalbúa að einn lukkulegur kylfingur hefði náð þeim eftirsótta áfanga að fara holu í höggi á 8. braut á golfvellinum í Miðdal laugardaginn 19. júní. Að sjálfsögðu var leitað frekari frétta af þessu draumahöggi.23.06.2010
Jónsmessumót GD 19. júní-úrslit
Hið sívinsæla Jónsmessumót Dalbúa fór fram að kvöldi laugardagsins 19. júní. Líkt og síðustu ár var spilaður snærisleikur...15.06.2010
Jónsmessumót Dalbúa laugardaginn 19. júní – snærisleikur
Jónsmessumót Dalbúa fer fram næstkomandi laugardagskvöld, 19. júní. Að venju verða spilaðar 9 holur og hefst mótið kl. 20:00.15.06.2010
Annar vinnudagur GD í Miðdal
Önnur vinnutörn á þessu vori á vellinum okkar í Miðdal fer fram sunnudaginn 20. júní og hefst kl. 13:00. Ætlunin er að vinna að endanlegum frágangi nýræktar í lengingu á 3. braut, þ.e. grjóthreinsa svæðið, raka yfir það til sáningar og ganga snyrtilega frá kantsvæðum og nánasta umhverfi.14.06.2010
HM í knattspyrnu í golfskálanum í Miðdal
Eins og allir vita, áhugamenn sem aðrir, er heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu hafin í Suður- Afríku, og sjónvarpað er frá öllum leikjum keppninnar, sem stendur allt fram til 11. júlí, þegar úrslitaleikurinn fer fram.10.06.2010
Samkaup / strax mótaröðin hafin
Fyrsta mótið í Samkaup / strax mótaröðinni fór fram föstudaginn 4. júní í blíðskaparveðri,og er greinilegt að félagsmenn ætla að taka mótaröðinni vel í ár.09.06.2010
Vinavellir Dalbúa
Í ár eru vinavellir Dalbúa þrír: Golfklúbbur Hveragerðis, Golfklúbbur Selfoss og Golfklúbburinn Úthlíð sem þýðir að félagsmenn Dalbúa fá 50% afslátt af vallargjöldum. Þetta gildir gagnkvæmt.08.06.2010
MBT / Veggsport mótið 6. júní-úrslit
Fyrsta stórmót sumarsins fór fram á vellinum í Miðdal sunnudaginn 6. júní í blíðskaparveðri. Þátttaka í mótinu var að venju góð, en yfir 30 manns spiluðu 18 holur í mótinu, sem að þessu sinni var leikið sem punktakeppni.31.05.2010
MBT/Veggsport mótið 6. júní
Fyrsta reglulega mót sumarsins hjá Golfklúbbnum Dalbúa verður haldið sunnudaginn 6. júní og hefst kl. 10:00. Mótið verður punktakeppni og glæsileg verðlaun í boði frá MBT og Veggsports.31.05.2010
Samkaup / Strax - mótaröðin
Samkaup/strax mótaröðin verður nú haldin í annað sinn, en hún er hugsuð sem sérstök skemmtun fyrir klúbbfélaga, sem þeir geta tekið þátt í að vild á hverjum föstudegi fram í ágúst.31.05.2010
Meistaramót GD 2010 í holukeppni
Skráning er hafin í meistaramót GD 2010 í holukeppni er hafin og stendur til 8. júní.10.05.2010
Vinnudagur í Miðdal
Vinnudagur Golfklúbbsins Dalbúa var haldinn laugardaginn 8. maí, og mættu tæplega 30 félagsmenn og unnu af krafti við að koma öllu í gott horf eftir veturinn. Veður var mjög gott og vor í lofti, og völlurinn virðist koma vel undan vetri, þó enn sé nokkuð í að hann verði iðagrænn og í sumarskrúða.30.04.2010
Vinnudagur 8. maí
Nú styttist í golfvertíðina hjá okkur og tími til kominn að huga að vinnudegi. Undanfarin ár hafa félagsmenn verið duglegir við að leggja hönd á plóginn og er það klúbbnum ómetanlegt.14.04.2010
Félagsgjöld 2010
Kæru félagsmenn! Nú ættu allir að hafa fengið bréf varðandi félagsgjöld fyrir árið 2010. Við hvetjum alla félagsmenn til að greiða árgjaldið sem fyrst til að greiða fyrir framkvæmdum og gera starf klúbbsins öflugra.20.03.2010
Ársreikningur Dalbúa 2009
Nú liggur fyrir endurskoðaður reikningur félagsins og geta félagsmenn kynnt sér hann hér á netinu.17.03.2010
Vetrargolf í Miðdal
Eins og félagsmenn hafa orðið varir við hefur tíðin í vetur verið með eindæmum góð, og lengst af verið auð jörð á golfvellinum í Miðdal.05.12.2009
Aðalfundur Dalbúa
Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2009 var haldinn mánudaginn 30. nóvember 2009. Mæting hefði mátt vera meiri, en innan við 20 félagsmenn mættu á fundinn, sem fór fram í sal Rafiðnaðarsambandsins að Stórhöfða 31.01.12.2009
Skilti- gjöf
Golfklúbbnum hefur borist skemmtileg gjöf frá Ólafi Pálssyni í formi skiltis þar sem fram kemur nafn klúbbsins. Skiltið er vel þegið og verður því komið fyrir á góðum stað í skála Dalbúa með vorinu. Þökkum við honum kærlega fyrir.14.09.2009
Samkaup / strax mótaröðin 2009 – úrslit
Eins og félagsmenn Dalbúa kannast við var Samkaup / strax mótaröðin hugsuð sem sérstök skemmtun fyrir klúbbfélaga, sem þeir gátu tekið þátt í að vild yfir allt sumarið, og var einkum ætluð til að hvetja félagsmenn til að spila völlin eins oft og kostur væri.14.09.2009
Úrslit í Lindarmótinu og lokahófið 12. ágúst
Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 12. september í lygnu og góðu veðri, en nokkur væta gerði að verkum að keppendur þurftu að vanda sig venju fremur í leik sínum. Þátttakendur voru alls 64 að þessu sinni, sem er fjölmennasta Lindarmótið til þessa, og góður endapunktur á stórum mótum sumarsins hjá klúbbnum.08.09.2009
Lindarmótið og lokahóf 12. ágúst
Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa verður haldið laugardaginn 12. september. Hér er um að ræða hið sívinsæla Lindarmót, sem veitingahúsið Lindin á Laugarvatni stendur að með klúbbnum. Lokahóf sumarstarfstarfsins fer síðan fram um kvöldið í Lindinni.
03.09.2009
Fleiri gjafir - framkvæmdir við nýja 3. flöt
Strax eftir afmælismótið og glæsilegan afmælisfagnað 15. ágúst sl. bárust golfklúbbnum Dalbúa enn frekari gjafir en tilkynnt var um þá. Ber þar hæst að klúbbnum hefur borist gjöf að upphæð 30 þúsund krónur frá Ólafi Pálssyni, nýkjörnum heiðursfélaga, og skal gjöfin renna til að greiða kostnað við hina nýju flöt á 3. braut.03.09.2009
Gunnarsmótið 30. ágúst-úrslit
Gunnarsmótið fór fram í glampandi sólskini sunnudaginn 30. ágúst. Norðangjólan réð hins vegar ríkjum á vellinum, hélt mönnum við efnið og hafði nokkur áhrif á árangurinn, enda golfarar ekki fengið mikla þjálfun í að spila í slíkum vindi á vellinum í Miðdal í sumar.25.08.2009
Gunnarsmótið 30. ágúst
Næstsíðasta mót sumarsins, Gunnarsmótið, sem haldið er til heiðurs Gunnari G. Schram, fyrsta formanni Dalbúa, fer fram sunnudaginn 30. ágúst, og er öllum opið. Mótið er punktakeppni með fullri forgjöf, og er skráning hafin.24.08.2009
Óhapp á golfvelli Dalbúa – áminning um umgengni
Aðfaranótt föstudagsins 21. ágúst varð það óhapp á velli Dalbúa í Miðdal, að hrossahópur komst inn á völlinn um hlið, sem gleymdist að loka niðri við veg, þar sem verið er að hefja framkvæmdir við nýja flöt á 3. braut.19.08.2009
20 ára afmæli Golfklúbbsins Dalbúa
Við óskum félögum í Golfklúbbnum Dalbúa til hamingju með 20 ára afmælið, sem er í dag!18.08.2009
20 ára afmælisfagnaður Dalbúa
Að loknu G3 – Afmælismóti GD laugardaginn 15. ágúst var haldinn sérstakur afmælisfagnaður klúbbsins í samkomutjaldi á nýreistum palli við golfskálann. Var mikill fjöldi félagsmanna, góðra gesta og velunnara Dalbúa saman kominn til að fagna afmælinu.18.08.2009
G3 – Afmælismót GD - úrslit
G3 – Afmælismót GD fór fram laugardaginn 15. ágúst og tókst í alla staði vel. Þrátt fyrir mikla og afar staðbundna úrkomu var hlýtt í veðri og logn á meðan mótið fór fram, og vel búnir og í sumum tilvikum skrautlega klæddir kylfingar hófu keppni kl. 12:00.12.08.2009
G3 – Afmælismót GD og afmælisfagnaður 15. ágúst-NÝTT
Vegna gríðarlegrar aðsóknar hefur nú verið lokað fyrir skráningu í G3 – Afmælismót GD laugardaginn 15. ágúst. Þeir sem hafa ekki náð að skrá sig en hafa hug á að spila í mótinu geta sent tölvupóst til formanns mótanefndar, Braga Dór Hafþórssonar (bragid@gmail.com) og verða þá settir á biðlista.12.08.2009
Framkvæmdir vegna afmælismóts Dalbúa
Undanfarna daga hefur húsnefndin ásamt fleirum verið að byggja stóran pall undir samkomutjald við hlið golfskálans og hefur það gengið vonum framar.11.08.2009
Tíu mótum í Samkaup / strax mótaröðinni lokið – breyting á keppnisdögum
Nú er tíu mótum lokið í Samkaup / strax mótaröðinni og þar með er tveimur þriðju hlutum mótanna lokið. Tölfræðin úr þeim mótum sem lokið er segir eftirfarandi:10.08.2009
G3 – Afmælismót GD og afmælisfagnaður 15. ágúst
Í ár eru 20 ár liðin frá stofnun golfklúbbsins Dalbúa, og því er fyrirhugað að minnast þessara tímamóta með veglegum hætti á svæði félagsins.21.07.2009
Meistaramót Dalbúa helgina 18-19 júlí síðastliðinn
Um síðustu helg fór fram mót mótanna hjá klúbbnum en þá var meistaramót klúbbsins spilað. Líkt og fyrir ári þá var um tveggja daga mót að ræða og hefur slíkt fyrirkomulag hlotið góðar viðtökur hjá keppendum í mótinu.10.07.2009
Meistaramót Dalbúa 18. og 19. júlí
Meistaramót Golfklúbbsins Dalbúa fer fram helgina 18. og 19. júlí, og samkvæmt hefð verður leikinn höggleikur án forgjafar. Mótið er fyrir alla félagsmenn GD.08.07.2009
Þriðjungi Samkaup / strax mótaraðarinnar lokið – keppnin að komast á fullt
Fimmta mótið í Samkaup / strax mótaröðinni fór fram föstudaginn 3. júlí, og þar með er einum þriðja hluta mótanna lokið.06.07.2009
Úrslit í Opna Carlsbergmóti GD
Mótanefnd vill þakka keppendum kærlega fyrir þátttökuna, það er alveg ljóst að færri komust að en vildu og hvetjum við því keppendur í framtíðinni til að fylgjast vel með á heimasíðunni og svo á golf.is.29.06.2009
Opna Carlsberg-mótið
Opna Carlsberg - mótið hefur undanfarin ár verið eitt skemmtilegasta mót ársins hjá Golfklúbbnum Dalbúa og er stefnt að því að svo verði einnig í ár. Á mótinu er spilaður höggleikur með og án forgjafar, og eru glæsilegir vinningar mótsins í boði Carlsberg.29.06.2009
Vaxandi þátttaka í Samkaup / strax mótaröðinni
Fjórða mótið í Samkaup / strax mótaröðinni fór fram föstudaginn 26. júní og það notuðu sér margir kostinn á að spila á vellinum í Miðdal í blíðskaparveðri. Það er orðinn nokkuð þéttur hópur um þrjátíu félaga sem tekur þátt í mótinu og skilar inn skorkortum eftir að hafa leikið einn hring á föstudögum. Nokkrir hafa tekið þátt í öllum mótunum til þessa, og er að myndast ákveðin samkeppni í hópnum.22.06.2009
Jónsmessumót GD 20. júní
Hið sívinsæla Jónsmessumót Dalbúa fór fram að kvöldi laugardagsins 20. júní. Eins og síðustu ár var spilaður snærisleikur, þannig að spilarar fengu snærisspotta í hlutfall við forgjöf...22.06.2009
Samkaup / strax mótaröðin III
Þriðja mótið í Samkaup / strax mótaröðinni fór fram föstudaginn 19. júní, á kvennadaginn.16.06.2009
Jónsmessumót Dalbúa laugardaginn 20. júní – snærisleikur
Jónsmessumót Dalbúa fer fram næstkomandi laugardagskvöld, 20. júní. Að venju verða spilaðar 9 holur og hefst mótið kl. 20:00. Eins og áður verða léttleiki og fjör einkunnarorð mótsins, og félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og spila einstakt golf í góðum hópi.15.06.2009
Samkaup / strax mótaröðin heldur áfram
Annað mótið í Samkaup / strax mótaröðinni fór fram föstudaginn 12. júní.09.06.2009
MBT / Veggsport mótið 7. júní
Fyrsta stórmót sumarsins fór fram fram á vellinum í Miðdal sunnudaginn 7. júní. Þátttaka í mótinu var góð...09.06.2009
Samkaup / strax mótaröðin hafin!
Fyrsta mótið í Samkaup / strax mótaröðinni fór fram föstudaginn 5. júní.04.06.2009
Fyrstu mót sumarsins
Samkaup/strax mótaröðin sem verður alla föstudaga í sumar hefst núna á föstudaginn 5. júní og svo verður MBT/Veggsport mótið sunnudaginn 7. júní.27.05.2009
Framkvæmdir hafnar við teig 2
Eins og flestir hafa tekið eftir eru hafnar framkvæmdir við gerð tveggja nýrra teiga á braut 2.05.05.2009
Vel heppnaður vinnudagur!
Vinnudagurinn GD var ágætlega sóttur og lögðu margir hönd á plóginn þótt veðrið hefði mátt vera aðeins betra við okkur.29.04.2009
Vinnudagur 2. maí
Vinnudagurinn 02. maí - Byrjum kl. 10:00 og reynu að vinna til ca. 15:00 og spilum þá og höfum gaman.03.04.2009
Framkvæmdir
Ákveðið hefur verið að ráðast í framkvæmdir á vellinum nú strax eftir páska...17.01.2012
Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi
Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2011 var haldinn 30. nóvember sl., og má segja að með honum hafi formlega lokið starfseminni klúbbsins á því ári sem nú er að ljúka.15.11.2011
Dalbúi - Aðalfundur
AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA Sal Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin, miðvikudaginn 30. nóvember 2011 kl. 17:15 – 19:0019.10.2011
Vetrargolf Dalbúa
Vetrargolf Dalbúa Velli golfklúbbsins Dalbúa hefur nú verið lokað eftir vertíð sumarsins, eins og þeir félagar hafa séð, sem hafa lagt leið sína í Miðdal undanfarið. Líkt og síðustu ár má þó búast við að félagar hafi áhuga á að spila völlinn í vetur, þegar veður leyfir, og á síðasta vetri mátti sjá þó nokkra félagsmenn fara hring á vellinum og þannig spila vetrargolf við oft ágætar aðstæður.19.09.2011
Lindarmótið 17. september - úrslit
Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 17. september í björtu og góðu veðri – eins konar stund milli vondra veðurdaga báðum megin við, eins og mótanefnd hafði raunar samið um við æðri máttarvöld. Þátttakendur voru alls 36 að þessu sinni, fullt á allar brautir, og góður endapunktur á góðum mótum sumarsins hjá klúbbnum.

