Árgjald og önnur gjöld fyrir árið 2011

Einstaklingur 30.000 kr.
Unglingar undir 18 ára aldri 7.500 kr. (miðað við fæðingarár).

Samþykkt var á aðalfundi að sérstakur 10% afsláttur fyrir börn og aðra félagsmanna og aðra sem hafa sama lögheimili verði nú felldur niður.
Afsláttur 70 ára og eldri verði áfram 25% árgjalds til GD, afsláttur 75 ára og eldri verði 50% árgjalds til GD, en 80 ára og eldri greiði aðeins árgjald til GSÍ (4.000 kr. árið 2011).

Unglingar undir 14 ára (miðað við fæðingarár) greiða engin árgjöld.

Önnur gjöld verði óbreytt frá árinu 2010
(Sú ákvörðun þýðir að þau verða sem hér sem hér segir:

Sumarkortagjald verður óbreytt:
- kr. 26.000 fyrir einstakling,
- kr. 7.500 fyrir unglinga undir 18 ára aldri (miðað við fæðingarár).
 

Íslenskar getspá


17.01.2012

Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi

Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2011 var haldinn 30. nóvember sl., og má segja að með honum hafi formlega lokið starfseminni klúbbsins á því ári sem nú er að ljúka.

15.11.2011

Dalbúi - Aðalfundur

AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA Sal Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin, miðvikudaginn 30. nóvember 2011 kl. 17:15 – 19:00

19.10.2011

Vetrargolf Dalbúa

Vetrargolf Dalbúa Velli golfklúbbsins Dalbúa hefur nú verið lokað eftir vertíð sumarsins, eins og þeir félagar hafa séð, sem hafa lagt leið sína í Miðdal undanfarið. Líkt og síðustu ár má þó búast við að félagar hafi áhuga á að spila völlinn í vetur, þegar veður leyfir, og á síðasta vetri mátti sjá þó nokkra félagsmenn fara hring á vellinum og þannig spila vetrargolf við oft ágætar aðstæður.

19.09.2011

Lindarmótið 17. september - úrslit

Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 17. september í björtu og góðu veðri – eins konar stund milli vondra veðurdaga báðum megin við, eins og mótanefnd hafði raunar samið um við æðri máttarvöld. Þátttakendur voru alls 36 að þessu sinni, fullt á allar brautir, og góður endapunktur á góðum mótum sumarsins hjá klúbbnum.

Golfklúbburinn Dalbúi - info@dalbui.is | Miðdal-Laugarvatni | Sími í skála: 8930200 gd.dalbui@gmail.com