Draumur Dalbúans - lokastaða

Þá er lokið öllum níu leikdögum í mótaröðinni Draumur Dalbúans, og lokastaðan orðin ljós, og tafla yfir hana fylgir hér með.

Það kom í ljós að síðustu tveir keppnisdagarnir nýttust ekki sem skyldi, m.a. vegna veðurs, en keppendur voru engu að síður duglegir yfir keppnistímann, og skiluðu felstir þeim árangri að einstakar brautir skiluðu sífellt lægri tölum.

Lokastaðan er sú, að meirihluti þátttakenda lék Draumahringinn undir sinni vallarforgjöf, allt að níu höggum, og því er ljóst að æfingin skapar meistarann og endurtekningin gefur tækifæri til að bæta árangurinn.

Mótanefnd vill þakka öllum þátttakendum fyrir að vera með í Draum Dalbúans; verði leikurinn endurtekinn að ári ber hins vegar að vona að fleiri félagsmenn noti sér tækifærið til að bæta leik sinn á vellinum með það að markmiði að Draumur Dalbúans verði sem lægstar tölur á skorkortinu.

Mótanefnd.

Hér má nálgast stöðuna (PDF)



Íslenskar getspá


17.01.2012

Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi

Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2011 var haldinn 30. nóvember sl., og má segja að með honum hafi formlega lokið starfseminni klúbbsins á því ári sem nú er að ljúka.

15.11.2011

Dalbúi - Aðalfundur

AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA Sal Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin, miðvikudaginn 30. nóvember 2011 kl. 17:15 – 19:00

19.10.2011

Vetrargolf Dalbúa

Vetrargolf Dalbúa Velli golfklúbbsins Dalbúa hefur nú verið lokað eftir vertíð sumarsins, eins og þeir félagar hafa séð, sem hafa lagt leið sína í Miðdal undanfarið. Líkt og síðustu ár má þó búast við að félagar hafi áhuga á að spila völlinn í vetur, þegar veður leyfir, og á síðasta vetri mátti sjá þó nokkra félagsmenn fara hring á vellinum og þannig spila vetrargolf við oft ágætar aðstæður.

19.09.2011

Lindarmótið 17. september - úrslit

Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 17. september í björtu og góðu veðri – eins konar stund milli vondra veðurdaga báðum megin við, eins og mótanefnd hafði raunar samið um við æðri máttarvöld. Þátttakendur voru alls 36 að þessu sinni, fullt á allar brautir, og góður endapunktur á góðum mótum sumarsins hjá klúbbnum.

Golfklúbburinn Dalbúi - info@dalbui.is | Miðdal-Laugarvatni | Sími í skála: 8930200 gd.dalbui@gmail.com