Guðmundur H. Sigmundsson vallarstjóri Dalbúa, Dr. Erlendur Haraldsson, Guðmundur Ragnarsson formaður félags vélstjóra og málmtæknimanna, Páll Ólafsson formaður Dalbúa og Hafsteinn Daníelsson varaformaður Dalbúa.

 

Golfklúbburinn Dalbúi fær höfðinglega gjöf – heilan skóg til gróðursetningar

Golfklúbburinn Dalbúi hefur fengið höfðinglega gjöf, sem getur gert mögulegt að breyta vellinum í Miðdal í framtíðinni með áhrifamiklum hætti. Um er að ræða 300 gróskumiklar trjáplöntur – greni, furu og lerki.

Dr. Erlendur Haraldsson, heiðursprófessor við félagsvísindadeild Háskóla Íslands, hefur um langt árabil staðið í mikilli skógrækt við sumarbústað sinni í Snorrastaðahlíð. Erlendur er víðkunnur fyrir fræðistörf sín á sviði sálfræði, auk þess að vera fróðastur Íslendinga um málefni og sögu Kúrda og Kúrdistan; eftir hann liggja fjölmargar bækur og greinar um þau málefni, sem hann hefur helgað rannsóknir sínar.

Erlendur hefur ákveðið að draga úr starfi sínu í skógræktinni sökum aldurs. Því vildi hann bjóða Golfklúbbnum Dalbúa trjáplöntur til gróðursetningar á velli félagsins í Miðdal gegn vægu gjaldi, m.a. til minningar um afa sinn sem hvílir í kirkjugarðinum í Miðdal, en afi hans og nafni, Erlendur Þorleifsson, bjó ásamt eiginkonu sinni Margréti Magnúsdóttir á Ketilvöllum 1888-1909.

VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna, brást af einstakri rausn við beiðni Dalbúa um aðstoð við að gera klúbbnum mögulegt að nýta þetta einstæða tækifæri, og hefur ákveðið að gefa golfklúbbnum þessar þrjú hundruð trjáplöntur fyrir völlinn í Miðdal.

Í tilefni þessa þarf á næstunni að sækja trén í núverandi gróðurreit, og koma þeim fyrir á svæði Dalbúa þar til ákveðið hefur verið hvar þær skuli endanlega staðsettar á vellinum. Plönturnar eru að meðaltali 1 – 2 metra háar, og allar í pottum og því tilbúnar til gróðursetningar. Það verður sameiginlegt verkefni félagsins á næstunni að huga að mögulegum staðsetningum fyrir trén, þannig að þau megi sem best þjóna þeim tilgangi að gera völlinn enn skemmtilegri fyrir félagsmanna og aðra kylfinga í framtíðinni.

Stjórn golfklúbbsins Dalbúa vill koma á framfæri innilegu þakklæti sínu til Dr. Erlends Haraldssonar og VM - Félags vélstjórna og málmtæknimanna, fyrir þessa höfðinglegu gjöf. Það er ekki á hverjum degi sem golfklúbbi er færður heill skógur að gjöf, og verður spennandi að sjá með hvaða hætti þessi veglega gjöf á eftir að efla völlinn í Miðdal á komandi árum.

Stjórn GD.

Hér má sjá myndir frá afhendingunni.

Íslenskar getspá


17.01.2012

Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi

Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2011 var haldinn 30. nóvember sl., og má segja að með honum hafi formlega lokið starfseminni klúbbsins á því ári sem nú er að ljúka.

15.11.2011

Dalbúi - Aðalfundur

AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA Sal Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin, miðvikudaginn 30. nóvember 2011 kl. 17:15 – 19:00

19.10.2011

Vetrargolf Dalbúa

Vetrargolf Dalbúa Velli golfklúbbsins Dalbúa hefur nú verið lokað eftir vertíð sumarsins, eins og þeir félagar hafa séð, sem hafa lagt leið sína í Miðdal undanfarið. Líkt og síðustu ár má þó búast við að félagar hafi áhuga á að spila völlinn í vetur, þegar veður leyfir, og á síðasta vetri mátti sjá þó nokkra félagsmenn fara hring á vellinum og þannig spila vetrargolf við oft ágætar aðstæður.

19.09.2011

Lindarmótið 17. september - úrslit

Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 17. september í björtu og góðu veðri – eins konar stund milli vondra veðurdaga báðum megin við, eins og mótanefnd hafði raunar samið um við æðri máttarvöld. Þátttakendur voru alls 36 að þessu sinni, fullt á allar brautir, og góður endapunktur á góðum mótum sumarsins hjá klúbbnum.

Golfklúbburinn Dalbúi - info@dalbui.is | Miðdal-Laugarvatni | Sími í skála: 8930200 gd.dalbui@gmail.com