Samkaup / Strax - mótaröðin
Samkaup/strax mótaröðin verður nú haldin í annað sinn, en hún er hugsuð sem sérstök skemmtun fyrir klúbbfélaga, sem þeir geta tekið þátt í að vild á hverjum föstudegi fram í ágúst.
Samkaup / strax verslunin á Laugarvatni er sérstakur stuðningsaðili mótaraðarinnar.
Það er einfalt fyrir félagsmenn að taka þátt í Samkaup / strax mótunum, en þau eru nú 10 talsins:
- Engin sérstök skráning er í mótin, og engin þátttökugjöld.
- Spilað er á föstudögum frá júní fram í ágúst, 10 föstudaga í röð.
- Keppendur spila á eigin vegum 9 holu hring, a.m.k. tveir saman; skorkortum með undirritun leikmanns og ritara skal skilað í klúbbhús (póstkassa) strax að leik loknum á föstudegi.
- Til að geta unnið til verðlauna þarf aðeins að taka þátt í þremur mótum yfir sumarið.
- Form keppninnar er punktakeppni yfir sumarið, en verðlaun verða veitt eftir tveimur leiðum:
a) best meðaltal punkta úr þremur bestu mótum þátttakenda (bestan árangur að meðaltali) og
b) heildarpunktafjölda (besta þátttöku yfir sumarið í heild).
- Yfirlit yfir stöðuna í mótaröðinni verður birt reglulega í heimasíðu Dalbúa, www.dalbui.is.
- Verðlaun verða afhent eftir Lindarmótið 12. september.
Samkaup / strax mót nr. I fer fram föstudaginn 4. júní
Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt – og sem oftast – í skemmtilegum leik !
Til baka
