Meistaramót Dalbúa – úrslit
Þátttaka var svipuð og á síðasta ári, og var sem fyrr keppt í tveimur flokkum karla og einum kvennaflokki.
Ræst var út frá kl. 8:00 á laugardeginum og frá kl. 9:00 á sunnudaginn, og gekk mótið vel fyrir sig. Dómari mótsins hafði því lítið að gera annað en njóta veðurblíðunnar, og síðan að taka saman og skrá úrslitin þegar keppendur komu í hús.
Að loknum síðari keppnisdegi kom í ljós að spennan var í algleymingi, og þurfti að leika bráðabana um 1. og 3. sæti í meistaraflokki karla sem og um 3. sæti í 1. flokki karla. Voru síðustu holurnar því leiknar að nýju og kom þá hin endanlega röð sigurvegara í ljós.
Í meistaraflokki karla varð röðin sem hér segir:
- sæti féll í skaut Friðgeirs Halldórssonar, sem lék hringina tvo á 175 höggum.
- sæti hlaut Bragi Dór Hafþórsson, sem einnig lék á samtals 175 höggum.
- sæti náði síðan Jón Þorbjörn Hilmarsson, en hann lék á alls 181 höggi eins og Hörður Bergsteinsson, en sigraði í keppni um sætið í bráðabana.
Í 1. flokki karla urðu úrslitin sem hér segir:
- sæti hlaut Sigurður Orri Hafþórsson, en hann lét hringina tvo á 192 höggum.
- sæti féll í skaut Ólafi Bergmann Bjarnasyni, sem lék samtals á 201 höggi.
- sæti náði síðan Sveinn Kjartansson, en hann lék á alls 202 höggum eins og þeir Bragi Arnarson og Gunnar H. Ragnarsson, en Sveinn sigraði í keppni um sætið í bráðabana.
Í kvennaflokki voru úrslitin eftirfarandi:
- sæti hlaut Hafdós Ingimundardóttir, en hún lék samtals á 182 höggum.
- sæti hlaut S. María Ingimundardóttir, sem lék á samtals 185 höggum.
- sæti náði Dóra Guðrún Kristinsdóttir, en hún lék á alls 208 höggum.
Úrslitin í heild er að finna inni á www.golf.is.
Næsta mót Dalbúa verður Unglingamót GD, sem haldið verður í fyrsta sinn sunnudaginn 8. ágúst, og eru félagsmenn hvattir til að sfá börnin sín og unglinga til að taka þátt í mótinu, enda er golf mikil og góð fjölskylduíþrótt, sem vert að að efla sem mest.
Hér eru svo myndir frá Meistaramóti Dalbúa 2010
Mótanefnd.
