B2 – Styrkarmót GD laugardaginn 14. ágúst
B2 – Styrkarmót GD laugardaginn 14. ágúst
B2 – Styrktarmót GD: Þetta verður sérstakt fjáröflunarmót (áður hafa verið haldin firmamót og á síðasta ári sérstakt afmælismót með „Texas Scramble“ fyrirkomulagi á þessum tíma) ætlað til að afla fjár til áframhaldandi endurbóta á vellinum í Miðdal.
Fyrirhugað var að B2 stæði fyrir „Bætum við brautum“, en í ljósi fjölmargra verkefna á vellinum er eðlilegra að B2 standi fyrir „Bætum um betur“, og að það fé sem klúbburinn aflar með mótinu verði notað til að bæta völlinn með ýmsum hætti, sem fjallað verður um síðar.
- Allar tekjur af þessu móti renna til uppbyggingar á vellinum í Miðdal á þessu hausti og næsta vori, enda nægt verkefni framundan á því sviði.
Ræst verður út af öllum teigum samtímis kl. 12:00, en til að það takist eru keppendur beðnir að mæta í Miðdal í síðasta lagi kl. 11:15. Skráning í mótið fer fram á www.golf.is. Spilaðar verða 18 holur eftir Texas scramble kerfi (2 manna) með fullri forgjöf, sem ætti að gefa öllum félagsmönnum eins jafna möguleika á sigri og hægt er.
- Þátttökugjald í mótinu er 3.500 kr. fyrir einstaklinga og greiðist við upphaf mótsins; hærri þátttökugjöld eru að sjálfsögðu velkomin í tilefni dagsins!
(Auk verðlauna fyrir sigur verður veittur fjöldi annarra verðlauna á mótinu, m.a. nándarverðlaun á 5. og 8. braut, verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 3. braut, og skemmtileg verðlaun sem kynnt verða á mótsdegi. Loks verða veitt sérstök verðlaun fyrir “besta útlitið” meðal keppenda þar sem skilgreining hugtaksins og val verðlaunahafa verður í höndum sérstakrar dómnefndar; klæðnaður, útbúnaður og fleiri atriði koma til greina við val verðlaunahafa.)
Markmið dagsins er góð skemmtun fyrir þátttakendur og klúbbfélaga, sem hvattir eru til að fjölmenna í mótið og styðja þannig við framkvæmdir sem stefna að enn betri velli í framtíðinni.
- Verðlaunaafhending fer fram að móti loknu.
- ATHUGIÐ:
Fyrirtæki geta styrkt klúbbinn og verkefnið sérstaklega á þessum tímamótum með því að styðja einstaka kylfinga og greiða hærri framlög, 6.000 kr. fyrir einn þátttakanda í mótinu en 10.000 kr. fyrir tvo – en hærri framlög eru að sjálfsögðu einnig vel þegin!
- Eru klúbbfélagar hvattir til að leita til sinna vinnuveitenda um að styrkja starfsemi klúbbsins með þessum hætti!
Við vonum að sem flestir félagsmenn og velunnarar golfklúbbsins Dalbúa komi saman og taki þátt í að gera klúbbnum kleyft að halda áfram að bæta völlinn í Miðdal.
Mótanefnd.
