Gunnarsmótið 29. ágúst
Gunnarsmótið 29. ágúst
Gunnarsmótið, sem haldið er til heiðurs Gunnari G. Schram, fyrsta formanni Dalbúa, fer að þessu sinni fram sunnudaginn 29. ágúst, og er öllum opið. Mótið er punktakeppni með fullri forgjöf, og er skráning hafin.
Eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna, taka með sér gesti og skrá sig tímanlega á www.golf.is, enda verða veglegir vinningar í boði. Þátttakendur eru jafnframt beðnir að skrá sig á rástíma, og ef ákveðnir hópar vilja spila saman í hóp geta þeir skráð hópinn saman til að tryggja slíka niðurröðun. Að öðru leyti verður tímaskráningin aðeins notuð til að setja saman ráshópa, því miðað er við að allir ráshópar verði ræstir út samtímis kl. 10:00.
Það var góð þátttaka í síðasta móti í Miðdal, og vonandi sjáum við góðan hóp félaga mæta í þetta skemmtilega mót.
Mótanefnd.
