Gunnarsmótið 29. ágúst-úrslit

Gunnarsmótið 2010 fór fram sunnudaginn 29. ágúst í mildu veðri, logni og örlitlum sudda sem síðan stytti upp þannig að veður var hið besta til golfiðkunar.

Alls voru 37 þátttakendur í mótinu eða sami fjöldi og tók þátt í því á síðasta ári, og var ræst út á öllum teigum samtímis. Leikin var punktakeppni með fullri forgjöf, og voru helstu úrslit eins og hér segir:

Úrslit í kvennaflokki voru eftirfarandi:
1. sæti hlaut Helga Björg Bragadóttir með 37 punkta og varði þar með titil sinn frá 2009,
2. sæti hlaut Kristín Þórisdóttir með 34 punkta, og
3. sæti hlaut Elísa St. Jónsdóttir með 31 punkt.

Keppnin í karlaflokki var afar jöfn, en úrslit þar urðu sem hér segir:
1. sæti hlaut Sveinn Kjartansson með 37 punkta,
2. sæti hlaut Bragi Dór Hafþórsson með 36 punkta, og
3. sæti hlaut Þórir Baldur Guðmundsson með 35 punkta.

Hlutu sigurvegararnir farandbikara mótsins, Gunnarsbikarinn og Elísubikarinn, en allir í verðlaunasætum fengu auk þess verðlaunapeninga og aðra veglega vinninga. – Öll úrslit og upplýsingar um frammistöðu einstakra keppenda er að finna í gögnum um mótið á www.golf.is.

Einnig voru veitt góð verðlaun fyrir fæst pútt á hringnum, lengstu teighögg á 3. braut og nándarverðlaun á 5. og 8. braut.
- Kristján Hilmarsson náði bestum árangri í á flötunum, en hann komst af með að nota aðeins 25 pútt á hringnum.
- Lengstu upphafshöggin áttu þau Ásta B. Benjamínsson og Bragi Dór Hafþórsson, og greinilegt að keppendur verða vel undirbúnir þegar brautin verður lengd í par 5 á næsta ári.
- Einn keppandi reyndist öðrum nákvæmari þegar kom að nándarverðlaunum, því að upphafshögg Helgu Bjargar Bragadóttur reyndust næst holu bæði á 5. og 8. braut, og má því segja að hún hafi sópað að sér verðlaunum á mótinu.

Var mikil ánægja með mótið sem tókst í alla staði vel, og vill mótanefnd þakka öllum þátttakendum kærlega fyrir góða skemmtun.

Mótanefnd.
 

Til baka

Golfklúbburinn Dalbúi | Miðdal-Laugarvatni | Sími í skála: 8930200 | gd.dalbui@gmail.com