Dalbúi - Aðalfundur

FUNDARBOÐ
AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA
 
Sal Rafiðnaðarskólans
Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin
miðvikudaginn 30. nóvember 2011
kl. 17:15 – 19:00
 
 
Dagskrá:
Samkvæmt 16. gr. laga félagsins:
 
Aðalfundur kýs fundarstjóra og ritara eftir tillögu stjórnar.
 
1.     Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
2.     Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
3.     Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning og hann borinn upp til samþykktar.
4.     Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
5.     Tillögur sem borist hafa teknar til umræður og afgreiðslu.
6.     Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár.
7.     Kosning stjórnar og varamanna í stjórn, sbr. 10. gr.
a.     Kosning formanns
b.     Kosnir 3 aðalmenn til tveggja ára
c.     Kosnir 2 varamenn til eins árs
8.     Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
9.     Lögð fram fjárhagsáætlun næsta starfsárs til samþykktar.
10. Önnur mál.
 
Engar tillögur hafa borist um lagabreytingar.
 
Einhverjar breytingar kunna að verða á stjórn eins og gerist í öllum félögum. Formaður hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér til formennsku. Eins og ávallt hvetur stjórn félagsins félagsmenn til að gefa kost á sér til stjórnar- og nefndarstarfa fyrir næsta starfsár. Ef þið hafið áhuga eða vitið af áhuga á slíku vinsamlegast hafið samband við formann félagsins, Pál Þóri Ólafsson, með tölvupósti (pallo@syrland.is) eða símleiðis (856 2918) sem allra fyrst.
 
Ný stjórn mun m.a. skipa í eftirfarandi nefndir að loknum aðalfundi: Mótanefnd, vallarnefnd, aganefnd og forgjafanefnd. Mikið hefur mætt á þeim nefndarmönnum sem nú eru í ofantöldum nefndum í starfsemi félagsins, einkum mótanefnd og vallarnefnd, og væri vert að fleiri tækju þátt í því starfi en nú er. Fyrir golfklúbb eins og Dalbúa er mikilvægt að sem flestir félagar taki þátt í uppbyggingu klúbbsins, og gefi kost á sér til starfa í stjórn eða nefndarstarfi. Reynslan sýnir að því betur sem nefndir eru mannaðar því minni tíma tekur að sinna þeim verkefnum sem nauðsynlegt er að vinna.   
 
Hér með er skorað á félagsmenn að mæta á aðalfund félagsins, fylgjast með hvernig hefur gengið og taka þátt í uppbyggingu golfklúbbsins, m.a. með því að gefa kost á sér í nefndar- eða stjórnarstörf, því margar hendur vinna létt verk. Eins og fyrr segir verður ekki skipað í nefndir á aðalfundi – það er verkefni stjórnar eftir fundinn – en þar gefst gott tækifæri til að ræða málin og efla félagsandann.
 
Vert er að vekja athygli á því að á fundinum verður veitt í fyrsta sinn sérstök viðurkenning fyrir framfarir á árinu, Framfarabikar Golfklúbbsins Dalbúa 2011, sem fyrirhugað er að verði árlegur liður á dagskrá aðalfunda hér eftir.
 
Að lokum vil ég sem fráfarandi formaður þakka ykkur öllum fyrir frábært samstarf á liðnum árum og ítreka að í sameiningu munum við halda áfram að gera góðan klúbb enn betri í framtíðinni.
 
f.h. stjórnar Golfklúbbs Dalbúa
 
Páll Þ. Ólafsson
formaður.
 

Til baka

Golfklúbburinn Dalbúi | Miðdal-Laugarvatni | Sími í skála: 8930200 | gd.dalbui@gmail.com