Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi
Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi
Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2011 var haldinn 30. nóvember sl., og má segja að með honum hafi formlega lokið starfseminni klúbbsins á því ári sem nú er að ljúka.
Dagskrá var í samræmi við lög félagsins. Fyrst var lögð fram skýrsla stjórnar og fjallað um helstu atriði hennar, m.a. skýrslur mótanefndar, vallarnefndar og rekstraraðila, og síðan var ársreikningur kynntur; Þá er í skýrslunni er fjöldi ljósmynda um starfið í félaginu í sumar.
Af reikningi ársins 2011 er það helst að segja að enn á ný er rekstur félagsins réttu megin og skilaði afgangi (tæplega 300 þús.kr.), sem að sjálfsögðu verður nýttur til frekari framkvæmda við völlinn á næsta ári. Félögum fækkaði þó örlítið milli ára og umferð um völlinn minnkaði, einkum framan af sumri, sem má helst rekja til kuldatíðar langt fram eftir júnímánuði.
- Ársskýrsluna, ársreikninginn og fundargerð aðalfundarins er hægt að skoða á vef félagsins (www.dalbui.is – undir dálk til vinstri, þ.e. Um Dalbúa – Skjöl).
Fundarmenn lýstu ánægju sinni með samstarf við vinavelli, sem ýmsir hefðu notað sér af mikilli ánægju. Þá lýstu menn ánægju með glæsilega ársskýrslu og ársreikninginn í heild sinni, og töldi ánægjulegt að sjá að vel væri farið með fjármuni félagsins.
Fram kom að við undirbúning tillögu sinnar um árgjöld hafi stjórn m.a. rætt aldursmörk árgjalda fyrir eldri félaga; hingað til hefur verið miðað við 70 ára aldur, en stjórnin telur eðlilegt að færa þessi mörk til almennra marka eldri borgara, þ.e. til 67 ára aldurs. Einnig lagði stjórnin til að gjaldskrá fyrir eldri félaga yrði einfölduð frá því sem verið hefur. Þá var lagt til að gjöldum fyrir börn og unglinga yrði breytt til samræmis við það sem sjá má hjá ýmsum öðrum klúbbum.
- Að loknum nokkrum umræðum var samþykkt tillaga stjórnar um að árgjöld 2012 verði óbreytt, og verði því sem hér segir:
- kr. 30.000 fyrir einstakling,
- kr. 24.000 fyrir einstakling 67 ára og eldri (miðað við fæðingarár),
- kr. 10.000 fyrir unglinga undir 18 ára aldri (miðað við fæðingarár)
- kr. 5.000 fyrir unglinga undir undir 14 ára aldri (miðað við fæðingarár).
- Ákvörðun um vallargjöld og önnur gjöld (keppnisgjöld o.fl.) verður tekin síðar, m.a. að höfðu samráði við mótanefnda og rekstraraðila.
Í kosningum til stjórnar var Páll Þórir Ólafsson endurkjörinn með lófataki sem formaður. Aðrir stjórnarmenn og varamenn voru einnig endurkjörnir, þeir Bragi Dór Hafþórsson, Hafsteinn Daníelsson og Stefán Ó. Guðmundsson sem aðalmenn til tveggja ára, og Guðmundur H. Sigmundsson og Hörður Bergsteinsson sem varamenn til eins árs.
Í lok aðalfundarins var framfarabikar Dalbúa afhentur í fyrsta sinn, en hann var ( og verður um komandi ár) veittur þeim félagsmanni, sem hefur tekið mestum framförum á árinu, miðað við lækkun forgjafar. Niðurstaðan af útreikingi á forgjöf félagsmanna varð sú, að Bragi Arnarson hlaut framfaraverðlaun golfklúbbsins Dalbúa árið 2011. Bragi, sem er fæddur árið 1997, lækkaði forgjöf sína á liðnu sumri úr 21,4 í upphafi vertíðar í 15,2 í haust, eða um samtals 6,2, og voru þetta mestu framfarir sem urðu meðal félagsmanna á árinu. Að launum var Braga veittur framfarabikar GD árið 2011, og er hann vel að þeim verðlaunum kominn.
Í lok fundarins þakkaði Páll Þórir Ólafsson fundarmönnum góðan aðalfund og undirtektir. Hann þakkaði einnig endurkjör sem formaður, og vonaðist til að sjá félagsmenn öfluga í golfinu og í starfinu fyrir félagið í framtíðinni.
Nú um stundir er snjór á jörð, en á nýhöfnu ári er framundan nýtt golfsumar. Stjórn Dalbúa sendir öllum félagsmönnum bestu kveðjur á nýju ári, með von og að sjá ykkur sem flest í leik og starfi á golfvellinum í Miðdal.
Stjórnin.
