Félagsgjöld 2010
Almennt árgjald 30.000 kr
Árgjald fyrir unglinga undir 18 ára aldri 7.500 kr.
Árgjald félaga 70-74 ára 23.500 kr.
Árgjald félaga 75-79 ára 17.000 kr.
Árgjald félaga 80 ára og eldri 4.000 kr.
Unglingar undir 14 ára greiða engin árgjöld.
(Í öllum aldursmörkum hér að ofan er miðað við fæðingarár)
Veittur verður 10% afsláttur pr. árgjald fyrir félagsmenn og unglinga sem hafa sama lögheimili.
Almennt vallargjald 2010:
Vallargjald fyrir einstakling: 2.700 kr.
Vallargjald fyrir hjón: 4.000 kr.
Vallargjald fyrir börn undir 18 ára aldri: 1.500 kr.
Almennt keppnisgjald á mótum á vegum GD. verður 2.500 kr.
17.01.2012
Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi
Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2011 var haldinn 30. nóvember sl., og má segja að með honum hafi formlega lokið starfseminni klúbbsins á því ári sem nú er að ljúka.15.11.2011
Dalbúi - Aðalfundur
AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA Sal Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin, miðvikudaginn 30. nóvember 2011 kl. 17:15 – 19:0019.10.2011
Vetrargolf Dalbúa
Vetrargolf Dalbúa Velli golfklúbbsins Dalbúa hefur nú verið lokað eftir vertíð sumarsins, eins og þeir félagar hafa séð, sem hafa lagt leið sína í Miðdal undanfarið. Líkt og síðustu ár má þó búast við að félagar hafi áhuga á að spila völlinn í vetur, þegar veður leyfir, og á síðasta vetri mátti sjá þó nokkra félagsmenn fara hring á vellinum og þannig spila vetrargolf við oft ágætar aðstæður.19.09.2011
Lindarmótið 17. september - úrslit
Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 17. september í björtu og góðu veðri – eins konar stund milli vondra veðurdaga báðum megin við, eins og mótanefnd hafði raunar samið um við æðri máttarvöld. Þátttakendur voru alls 36 að þessu sinni, fullt á allar brautir, og góður endapunktur á góðum mótum sumarsins hjá klúbbnum.

