Veitingasala - þjónusta

- starfsmannahópar

Léttar veitingar eru seldar í golfskála. Samlokur, kaffi, gos og bjór. Um helgar er boðið upp á frábærar súpur, vöflur ofl. Einnig eru seldir smáhlutir s.s. golfkúlur, tee ofl.
Nýr golfbíll er á staðnum sem hægt er að leigja.

„Golf og grill“

Stórt og gott grill er til reiðu hvenær sem er fyrir grillveislur starfsmannafélaga- eða annara hópa.

Athugið að tekið er við bæði debet- og kreditkortum. Hægt er að semja um hópaafslátt og sérstakar opnanir. Stór TW-flatskjár er í skála, þar er hægt að horfa á nokkrar rásir á sjónvarpi. Golfskálinn er tengdur með háhraða nettengingu.

Nánari upplýsingar um skála, veitingar og völl eru veittar í síma: 8930200 Guðmundur eða Ransý í síma 8930210

Leiðbeiningar til að komast á völlinn: Þegar ekið er frá Reykjavík er ekið í gegnum Laugarvatn um 5 km. í átt að Geysi, við Miðdal í sumarbústaðasvæði Félags Bókagerða-manna, þar er farið yfir brú á Skillandsá og beygt til vinstri. Ekinn er sá afleggjari um 500 m. og beygt inn á plan golfklúbbsins til hægri. Sjá kort.

Athugið að ef slegið er inn Dalbúi á ja.is þá kemur merkið upp á aðeins röngum stað, Miðdalur sem sést á kortinu hægra megin er rétti staðurinn.

Íslenskar getspá

17.01.2012

Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi

Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2011 var haldinn 30. nóvember sl., og má segja að með honum hafi formlega lokið starfseminni klúbbsins á því ári sem nú er að ljúka.

15.11.2011

Dalbúi - Aðalfundur

AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA Sal Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin, miðvikudaginn 30. nóvember 2011 kl. 17:15 – 19:00

19.10.2011

Vetrargolf Dalbúa

Vetrargolf Dalbúa Velli golfklúbbsins Dalbúa hefur nú verið lokað eftir vertíð sumarsins, eins og þeir félagar hafa séð, sem hafa lagt leið sína í Miðdal undanfarið. Líkt og síðustu ár má þó búast við að félagar hafi áhuga á að spila völlinn í vetur, þegar veður leyfir, og á síðasta vetri mátti sjá þó nokkra félagsmenn fara hring á vellinum og þannig spila vetrargolf við oft ágætar aðstæður.

19.09.2011

Lindarmótið 17. september - úrslit

Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 17. september í björtu og góðu veðri – eins konar stund milli vondra veðurdaga báðum megin við, eins og mótanefnd hafði raunar samið um við æðri máttarvöld. Þátttakendur voru alls 36 að þessu sinni, fullt á allar brautir, og góður endapunktur á góðum mótum sumarsins hjá klúbbnum.

15.09.2011

Lindarmótið og lokahóf 17. september

Við viljum minna félagsmenn aftur á Lindarmótið, síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa sem haldið verður laugardaginn 17. september.

13.09.2011

Lindarmótið og lokahóf 17. september

Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa verður haldið laugardaginn 17. september. Hér er um að ræða hið sívinsæla Lindarmót, sem veitingahúsið Lindin á Laugarvatni stendur að með klúbbnum. Lokahóf sumarstarfstarfsins fer síðan fram um kvöldið í Lindinni.

Golfklúbburinn Dalbúi - info@dalbui.is | Miðdal-Laugarvatni | Sími í skála: 8930200 gd.dalbui@gmail.com