Lindarmótið 17. september - úrslit

Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 17. september í björtu og góðu veðri – eins konar stund milli vondra veðurdaga báðum megin við, eins og mótanefnd hafði raunar samið um við æðri máttarvöld. Þátttakendur voru alls 36 að þessu sinni, fullt á allar brautir, og góður endapunktur á góðum mótum sumarsins hjá klúbbnum. Allir þátttakendur fengu teiggjafir frá veitingahúsinu Lindinni til að hressa sig á hringnum og einnig gjafabréf frá Laugarvatn Fontana, sem hægt var að nota til að láta þreytuna líða úr sér eftir keppnina hvort sem var í gufubaði eða sauna fyrirtækisins á Laugarvatni.

Samkvæmt venju voru spilaðar 18 holur eftir Texas scramble kerfi (2 manna) með fullri forgjöf, og var mikil spenna um úrslitin, en þau voru sem hér segir:
- Í fyrsta sæti á 68 höggum nettó voru þau Þórir B. Guðmundsson og Hafdís Ingimundardóttir.
- Í öðru sæti á 69 höggum nettó voru Óskar Svavarsson og Anna Sigríður Erlingsdóttir.
- Það var mikil spenna um þriðja sætið, en í því lentu á 72 höggum nettó þau Kristján Hilmarsson og Sesselja M. Matthíasdóttir. Þau Ása Þorkelsdóttir og Örn Helgi Haraldsson voru á sama skori nettó, en þar sem þau Kristján og Sesselja Margrét notuðu færri högg á síðari 9 holunum, dæmdist 3. sæti þeirra.

Auk verðlauna fyrir sigur voru veitt nokkur frekari verðlaun fyrir árangur í mótinu:
- Þórir B. Guðmundsson fékk verðlaun fyrir lengsta upphafshögg karla á 3./12. braut, og Edda Valsdóttir fyrir lengsta upphafshögg kvenna á sömu braut.
- Á 5./14. holu reyndist reyndist Örn Helgi Haraldsson næstur holu í upphafshöggi á flöt eða 2,2 m frá holunni.
- Á8/17. holu var síðan Hafdís Ingimundardóttir næst holunni í upphafhöggiá flöt, eða 8,8 m. frá holu.

Úrslit voru tilkynnt og verðlaunahafar fengu afhent verðlaun frá styrktaraðila mótsins í lokahófi sumarsins sem haldið var sama kvöld í veitingahúsinu Lindinni á Laugarvatni. Sigurvegararnir Þórir og Hafdís fengu auk þess afhentan veglegan farandbikar sem fylgir keppninni, og fá nöfn sín rituð á skjöld á bikarnum.
- Öll úrslit og lokastöðu mótsins er síðan að finna inni í www.golf.is.

Þá fengu keppendur í mótaröðinni Draumur Dalbúans afhend viðurkenningarskjöl á keppnisdegi fyrir þátttökuna í mótasröðinni, en lokastaðan í henni hafði verið kynnt í ágúst (þeir keppendur sem ekki voru á staðnum fá send sín viðurkenningarskjöl).

Mótnefnd vill þakka öllum þátttakendum í mótinu fyrir skemmtilega keppni, styrktaraðila Lindarmótsins fyrir vegleg verðlaun og öllum félagsmönnum fyrir fjörugt og oft spennandi keppnistímabil – hittumst hress og endurnærð í enn betra keppnisformi á golfvellinum okkar næsta sumar!

Mótanefnd.
Myndir frá hófinu á Lindinni

Íslenskar getspá


17.01.2012

Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi

Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2011 var haldinn 30. nóvember sl., og má segja að með honum hafi formlega lokið starfseminni klúbbsins á því ári sem nú er að ljúka.

15.11.2011

Dalbúi - Aðalfundur

AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA Sal Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin, miðvikudaginn 30. nóvember 2011 kl. 17:15 – 19:00

19.10.2011

Vetrargolf Dalbúa

Vetrargolf Dalbúa Velli golfklúbbsins Dalbúa hefur nú verið lokað eftir vertíð sumarsins, eins og þeir félagar hafa séð, sem hafa lagt leið sína í Miðdal undanfarið. Líkt og síðustu ár má þó búast við að félagar hafi áhuga á að spila völlinn í vetur, þegar veður leyfir, og á síðasta vetri mátti sjá þó nokkra félagsmenn fara hring á vellinum og þannig spila vetrargolf við oft ágætar aðstæður.

19.09.2011

Lindarmótið 17. september - úrslit

Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 17. september í björtu og góðu veðri – eins konar stund milli vondra veðurdaga báðum megin við, eins og mótanefnd hafði raunar samið um við æðri máttarvöld. Þátttakendur voru alls 36 að þessu sinni, fullt á allar brautir, og góður endapunktur á góðum mótum sumarsins hjá klúbbnum.

Golfklúbburinn Dalbúi - info@dalbui.is | Miðdal-Laugarvatni | Sími í skála: 8930200 gd.dalbui@gmail.com