Í ljósi þess hve veðrið lítur illa út fyrir helgina – rigning og fremur svalt – og fram eftir næstu viku, hefur stjórnin ákveðið að fresta vinnudegi klúbbsins á vinnudegi á þessu vori um viku.
Nú er komið í ljós að völlurinn í Miðdal er í ótrúlega góðu standi svo snemma vors; ekkert frost er í vellinum, brautir og flatir eru þegar orðnar grænar, þó karginn eigi enn eftir að taka við sér, og allar vallarsvæðið hefur þornað vel eftir veturinn, þótt nokkuð hafi rignt á völlinn um liðna helgi.
Í vetur hafa staðið yfir framkvæmdir við að klæða bæinn í Miðdal og skemmuna/áhaldahúsið upp á nýtt og á þetta eftir að verða staðnum til fyrirmyndar í sumar. Sjá myndir