Forgjafamál

Forgjafamál eru í höndum formanns forgjafanefndar, Hafþórs B. Guðmundssonar. Þeir sem þurfa að ná í hann vegna fjorgjafar sinnar eða fá upplýsingar er bent á netfangið hans hbg@hi.is eða í síma 663-6300. 
 

Hvernig fæ ég forgjöf?

Til þess að fá forgjöf verður leikmaður að vera í golfklúbbi og hafa greitt árgjaldið, skila inn þremur skorkortum til forgjafarnefndar (skrifstofu/ í skála) af viðurkenndum velli. Fyllið kortið út skýrt og greinilega með nafni kennitölu og síma, dagsetningu og samanlögðu skori. Munið að skrá aðeins einn hring á hvert skorkort. Nauðsynlegt er að ritari kortsins kvitti á skorkortið ásamt spilara. Síðan verður haft samband við viðkomandi þegar forgjöfin liggur fyrir.

Hér er hægt að sjá golfreglur í stuttu máli: Golfreglur (pdf)

Hér eru svo breytingar sem gerðar voru á golfreglunum

Hér er svo allt um lögleg "Teigtré"

Hér á eftir eru helstu atriði sem vert er að vita varðandi Stableford punktaútreikning og hækkanir og lækkanir samkvæmt EGA forgjafarútreikningi.

 

Skráning á skori

Hver kylfingur ber ábyrgð á að forgjöf sín sé rétt skráð. Leikmenn í forgjafarflokki 2. til 5. mega nota æfingaskor til forgjafarútreiknings svo fremi að golfreglum sé fylgt að öllu leyti. Ekki er þörf fyrir leikmenn í þessum forgjafarflokkum að taka sérstaklega þátt í móti eða tilkynna sérstaklega ætli leikmaður að spila til forgjafar. Leikmenn í 1. forgjafarflokki mega hins vegar ekki nota æfingaskor til forgjafarútreiknings.

Stableford punktar

Stableford punktar eru veittir á eftirfarandi hátt miðað við nettóskor á hverri holu, þ.e. brúttóskor leikmanns að frádreginni forgjöf á hverri holu fyrir sig.

 

Nettóskor á holu Punktar

2 högg yfir pari eða ekkert skor

0

1 högg yfir pari

1

Par

2

1 högg undir pari

3

2 högg undir pari

Og svo framvegis

4

 

 

Breyting forgjafar, hækkun, lækkun og gráa svæðið.

Skili maður gildu skori með færri punktum en "gráa svæðinu" nemur eða skili engu skori, skal hækka EGA grunnforgjöf hans um 0,1 í forgjafarflokkum 1 til 4 og um 0,2 í forgjafarflokki 5.

Skili leikmaður inn gildu skori með 37 punktum eða fleiri skal EGA grunnforgjöf hans lækka um ákveðna tölu vegna hvers punkts umfram 36. Eftirfarandi forgjafarflokkar ráða því hver sú tala er.

 

Flokkur

EGA

Grunnforgjöf

Gráa svæðið

Hækkun

undir gráa svæðinu eða ekkert skor

Lækkun

fyrir hvern punkt umfram 36

 

 

 

 

 

1

> 4.4

35 - 36

0.1

0.1

2

4.5 - 11.4

34 - 36

0.1

0.2

3

11.5 - 18.4

33 - 36

0.1

0.3

4

18.5 - 26.4

32 - 36

0.1

0.4

5

26.5 - 36.0

31 - 36

0.2

0.5

Hækkun og lækkun forgjafar tekur gildi samstundis.

Dæmi: Skili leikmaður með 11.2 í forgjöf skori með 25 punktum verður EGA forgjöf hans 11.3 á eftir. Skili hann síðan inn skori með 42 punktum lækkar EGA forgjöfin hans strax um 1.2 eða í 10.1. (42 - 36 = 6) 6 sinnum 0.2.

Breyting milli flokka

Lækki EGA grunnforgjöf úr hærri forgjafarflokki í lægri skal fyrst lækka hana samkvæmt hærri flokknum þar til skiptir um flokk, en reikna síðan samkvæmt ákvæðum um lægri flokkinnn.

Munið að forgjöf er alvarlegt mál sem ber að virða og halda í heiðri eins vel og hverjum er mögulegt. Leikmaður ber sjálfur ábyrgð á að forgjöf sé samkvæmt getu hverju sinni. Golf er byggt á heiðri hvers og eins þar sem hver leikmaður er sífellt að keppa við sjálfan sig um betri árangur. Röng forgjöf gefur ekki rétta mynd af getu þinni og er því óheiðarlegt að halda henni ekki rétt við samviskusamlega bæði gagnvart sjálfum þér og ekki síður gagnvart meðspilurum þínum.

Íslenskar getspá


17.01.2012

Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi

Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2011 var haldinn 30. nóvember sl., og má segja að með honum hafi formlega lokið starfseminni klúbbsins á því ári sem nú er að ljúka.

15.11.2011

Dalbúi - Aðalfundur

AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA Sal Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin, miðvikudaginn 30. nóvember 2011 kl. 17:15 – 19:00

19.10.2011

Vetrargolf Dalbúa

Vetrargolf Dalbúa Velli golfklúbbsins Dalbúa hefur nú verið lokað eftir vertíð sumarsins, eins og þeir félagar hafa séð, sem hafa lagt leið sína í Miðdal undanfarið. Líkt og síðustu ár má þó búast við að félagar hafi áhuga á að spila völlinn í vetur, þegar veður leyfir, og á síðasta vetri mátti sjá þó nokkra félagsmenn fara hring á vellinum og þannig spila vetrargolf við oft ágætar aðstæður.

19.09.2011

Lindarmótið 17. september - úrslit

Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 17. september í björtu og góðu veðri – eins konar stund milli vondra veðurdaga báðum megin við, eins og mótanefnd hafði raunar samið um við æðri máttarvöld. Þátttakendur voru alls 36 að þessu sinni, fullt á allar brautir, og góður endapunktur á góðum mótum sumarsins hjá klúbbnum.

Golfklúbburinn Dalbúi - info@dalbui.is | Miðdal-Laugarvatni | Sími í skála: 8930200 gd.dalbui@gmail.com