Staðarreglur Golfklúbbs Dalbúa
1. Vallarmörk eru girðingar og hvítir hælar.
2. Allir fjarlægðarhælar, bekkir og ruslatunnur teljast vera óhreyfanlegar hindranir (regla 24-2).
3. Bolta sem liggur á braut (snöggslegnu svæði á leið að flöt) má lyfta og leggja aftur innan einnar kylfulengdar frá þeim stað sem hann upphaflega lá, en aldrei nær holu og ekki í torfæru eða flöt (regla 20-1). Boltanum má lyfta og leggja eitt skipti í senn. Þegar boltanum hefur verið þannig lyft og hann lagður aftur er hann í leik. Að öðru leyti gildir Regla 13-1.
4. Bolta sem liggur við tré og er dæmdur ósláanlegur má lyfta og leggja aftur innan einnar kylfulengdar frá þeim stað sem hann upphaflega lá, en aldrei nær holu (regla 20-1). Að öðru leyti gildir Regla 13-1.
5. Færa má bolta um fjarlægð sem nemur púttershaus á flötum, eitt skipti í senn, en ekki nær holu.
6. Skurðir eru hliðarvatnstorfærur (Regla 26-1).
Það er mikilvægt að þeir sem spila völlinn hagi leik sínum í samræmi við þessar reglur!
Þessar reglur gilda fyrir árið 2010.
17.01.2012
Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi
Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2011 var haldinn 30. nóvember sl., og má segja að með honum hafi formlega lokið starfseminni klúbbsins á því ári sem nú er að ljúka.15.11.2011
Dalbúi - Aðalfundur
AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA Sal Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin, miðvikudaginn 30. nóvember 2011 kl. 17:15 – 19:0019.10.2011
Vetrargolf Dalbúa
Vetrargolf Dalbúa Velli golfklúbbsins Dalbúa hefur nú verið lokað eftir vertíð sumarsins, eins og þeir félagar hafa séð, sem hafa lagt leið sína í Miðdal undanfarið. Líkt og síðustu ár má þó búast við að félagar hafi áhuga á að spila völlinn í vetur, þegar veður leyfir, og á síðasta vetri mátti sjá þó nokkra félagsmenn fara hring á vellinum og þannig spila vetrargolf við oft ágætar aðstæður.19.09.2011
Lindarmótið 17. september - úrslit
Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 17. september í björtu og góðu veðri – eins konar stund milli vondra veðurdaga báðum megin við, eins og mótanefnd hafði raunar samið um við æðri máttarvöld. Þátttakendur voru alls 36 að þessu sinni, fullt á allar brautir, og góður endapunktur á góðum mótum sumarsins hjá klúbbnum.


