Golfvísur
Ágætu Dalbúar,
Eftirfarandi vísur um golfíþróttina komu fram í undirbúningi starfsmanna fjársýslu ríkisins að golfmóti, sem nýlega var haldið meðal þeirra og fleiri starfsmanna stjórnarráðsins. Eins og sjá má er skáldskapargyðjan með í för, og allir golfarar ættu að kannast við sig að einhverju leyti í þeim lýsingum sem hér koma fram.
Ef Dalbúar vita af fleiri skemmtilegum kveðskap um þessa göfugu líkamsrækt væri skemmtilegt að fá slíkt inn á vef klúbbsins, því ekki veitir okkar af léttri lund nú um stundir. Hægt er að senda á pallo@syrland.is
Með bestu kveðju,
Eiríkur Þorláksson.
GOLFARINN
Heggur, sparkar, hrækir, rær
hamast, grætur kreppir klær;
stappar, bölvar, spýtir, hlær
spyrnir fótum, miðar, slær.
Kylfa sveignar, kúlu nær,
kroppur, undinn, upp á tær.
Kúlur, kramdar, nára nær,
kviður stinnur, hugnast mær.
- Haraldur G. Blöndal
… líkleg atburðarás í kjölfar lýsingarinnar að ofan:
Kólfur niðr'af tíi fellur,
ekki verður nokkur skellur.
Stappar, bölvar, spýtir, hlær,
sparkar, tak í bakið fær.
… en ef það grísast á gott högg þá …
Boltinn útí buskann þýtur,
beint og yfir næstu strýtur.
Hátt á sjötta hundrað metra,
heldurð‘a geti orðið betra?
- Úlfar G. Ásmundsson
… og loks viðbót byrjandans:
Ég kann auðvitað ekkert að slá,
ótal skollunum mun ég því ná,
En hópurinn saman
hefur af gaman
hann mun hámarksánægju fá.
- Geir Thorsteinsson
