Reglugerð um veitingu heiðursviðurkenningar
Golfklúbbsins Dalbúa


1. gr.
Stjórn Golfklúbbsins Dalbúa er heimilt að veita þeim sem unnið hafa af atorku og dugnaði að vexti og viðgangi klúbbsins heiðursviðurkenningar eftir því sem sem segir í reglugerð þessari.

2. gr.
Heiðursviðurkenningar eru þessar:
a)    Heiðursfélagi Dalbúa
b)    Heiðursmerki úr gulli
c)    Heiðursmerki úr silfri
d)    Starfsmerki GD

Stórn GD útnefnir heiðursfélaga og þarf til samþykki ¾ stjórnarinnar. Heiðursfélagi fær afhent heiðursskjal viðurkenningunni til staðfestingar. Heiður þessi er sá æðsti, sem golfklúbburinn veitir. Heiðursfélagar eru undanþegnir árgjöldum, en hafa öll réttindi sem fylgja félagsaðild.

3. gr.
Nafnbótina heiðursfélagi má aðeins veita þeim sem hefur unnið frábært starf í þágu golfklúbbsins og eigi skemur en 10 ár. Heiðursfélagar mega aldrei vera fleiri en 10 hverju sinni og skal heiðursskjal klúbbsins afhent á aðalfundi eða við hátíðleg tækifæri.

4. gr.
Stjórn GD gerir tillögu um veitingu heiðursmerkis úr gulli. Heiðursmerki úr gulli má veita þeim félaga sem unnið hefur frábært starf í þágu félagsins og eigi skemur en 10 ár.
Kosning og afhending merkisins skal vera með sama hætti og getur um heiðursfélaga.


5. gr.
Stjórn GD gerir tillögu um veitingu heiðursmerkis úr silfri. Heiðursmerki úr silfri má veita þeim félaga sem unnið hefur gott starf eða keppni í þágu félagsins
Kosning og afhending merkisins skal vera með sama hætti og getur um heiðursfélaga.

6. gr.
Starfsmerki GD má veita þeim sem starfað hafa vel fyrir golfklúbbinn svo og þeim sem stjórn GD telur ástæðu til að heiðra eða veita viðurkenningu fyrir störf tengd klúbbnum.
Kosning og afhending merkisins skal vera með sama hætti og getur um heiðursfélaga.

7. gr.
Þeir sem hljóta heiðursviðurkenningar GD hafa einir rétt til þess að bera þær og er óheimilt að framselja þær.

8. gr.
Stjórn GD skal halda gerðabók þar sem skrá skal handhafa heiðursviðurkenninga GD.

Reglugerð þessi var samþykkt á fundi stjórnar GD 10. ágúst 2009.

Hér er skjalið í PDF



Íslenskar getspá


17.01.2012

Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi

Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2011 var haldinn 30. nóvember sl., og má segja að með honum hafi formlega lokið starfseminni klúbbsins á því ári sem nú er að ljúka.

15.11.2011

Dalbúi - Aðalfundur

AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA Sal Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin, miðvikudaginn 30. nóvember 2011 kl. 17:15 – 19:00

19.10.2011

Vetrargolf Dalbúa

Vetrargolf Dalbúa Velli golfklúbbsins Dalbúa hefur nú verið lokað eftir vertíð sumarsins, eins og þeir félagar hafa séð, sem hafa lagt leið sína í Miðdal undanfarið. Líkt og síðustu ár má þó búast við að félagar hafi áhuga á að spila völlinn í vetur, þegar veður leyfir, og á síðasta vetri mátti sjá þó nokkra félagsmenn fara hring á vellinum og þannig spila vetrargolf við oft ágætar aðstæður.

19.09.2011

Lindarmótið 17. september - úrslit

Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 17. september í björtu og góðu veðri – eins konar stund milli vondra veðurdaga báðum megin við, eins og mótanefnd hafði raunar samið um við æðri máttarvöld. Þátttakendur voru alls 36 að þessu sinni, fullt á allar brautir, og góður endapunktur á góðum mótum sumarsins hjá klúbbnum.

Golfklúbburinn Dalbúi - info@dalbui.is | Miðdal-Laugarvatni | Sími í skála: 8930200 gd.dalbui@gmail.com