Lög Golfklúbbsins Dalbúa

 

I.  Heiti, heimili og hlutverk.

1. gr.

Félagið heitir Golfklúbburinn Dalbúi, skammstafað GD (kt. 611189-1179). Félagssvæði og varnarþing GD er Bláskógabyggð. Félagið er aðili að Héraðssambandinu Skarphéðni (HSK), UMFÍ og GSÍ.

2. gr.

Tilgangur og markmið félagsins er iðkun golfíþróttarinnar, að efla áhuga á golfíþróttinni og önnur félagsstarfssemi er tengist íþróttinni.

 

II. Félagsmenn

3. gr.

Innganga í félagið er öllum frjáls, að fengnu samþykki félagsstjórnar. Þá hefur stjórn heimild til að semja um sérstaka aðild í ákveðnum tilfellum. Slík aðild skal háð ákveðnum takmörkunum um leik á völlum GD. Stjórn getur takmarkað fjölda félagsmanna ef þörf krefur

4. gr.

Árgjöld og sumargjöld skulu ákveðin á aðalfundi til eins árs í senn, að fenginni tillögu stjórnar.

5. gr.

Flatarfé ákvarðast af stjórn félagsins strax og samþykkt fjárhagsáætlun liggur fyrir samkvæmt 16. gr.

6. gr.

Stjórn félagsins hefur heimild til að semja um gagnkvæm afnot valla við aðra golfklúbba, auk annars samstarfs til hagsbóta fyrir félagið.

7. gr.

Úrsögn félaga tekur gildi strax og skal sú úrsögn tilkynnast til stjórnar bréflega. Félagi á ekki rétt á endurgreiðslu félagsgjalda vegna úrsagnar.

Ef stjórn félagsins samþykkir það samhljóða er heimilt að víkja mönnum úr félaginu að virtum andmælarétti.

8. gr.

Við golfleik skal farið eftir St. Andrew´s golfreglum eins og þær eru á hverjum tíma og þeim reglum sem GSÍ setur. Stjórnin getur sett sérreglur (staðarreglur) um leik og um umferð og umgengni á golfvellinum og í klúbbhúsinu eftir því sem þurfa þykir. 

Stjórnin skal sjá til þess að leik-, umgengnis-, og siðareglur liggi að jafnaði frammi í klúbbhúsinu. 

 

III. Stjórn

9. gr.

Allir lögráða félagsmenn eru kjörgengir til stjórnarstarfa.

10. gr.

Stjórn félagsins skipa sjö menn sem kosnir eru á aðalfundi: Formaður skal kosinn til eins árs í senn. Annað hvert ár skal kjósa 3 aðalmenn til tveggja ára og hitt árið 3 aðalmenn til tveggja ára. Varamenn eru tveir og skulu kosnir til eins árs í senn. Í forföllum aðalmanna skulu varamenn kallaðir til í þeirri röð sem þeir voru tilnefndir við kjör eða kosnir. Varamenn mega sitja alla stjórnarfundi í félaginu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hafa þeir aðeins í forföllum aðalmanna. Stjórnarmenn og varamenn má endurkjósa.

Formaður félagsins er forsvarsmaður þess og kemur hann fram fyrir hönd félagsins og stjórnar þegar við á, auk þess sem hann stýrir stjórnarfundum og sinnir öðrum þeim verkefnum sem stjórnin kann að fela honum og lög heimila.

Tveimur vikum fyrir aðalfund skal stjórnin skipa þrjá félaga í uppstillinganefnd til þess að gera tillögu á aðalfundi um kosningu stjórnar og varamenn í stjórn. A.m.k. einn þeirra skal hafa verið í stjórn eða varastjórn.

11. gr.

Á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund skiptir stjórnin með sér störfum. Auk formanns sitja í stjórn varaformaður, ritari, gjaldkeri og þrír meðstjórnendur.

12. gr.

Stjórnin ákveður sjálf starfstilhögun sína. Stjórnin ræður starfsfólk og skipar í nefndir. Stjórnarmenn fá bein útgjöld greidd úr félagssjóði. Hún kemur fram fyrir hönd félagsins í fullu umboði þess í öllum málum sem það varðar.

Samþykki félagsfundar þarf til meiri háttar ákvarðana sem hafa mikinn kostnað í för með sér og hafa ekki verið ákveðnar í fjárhagsáætlun eða kynntar á aðalfundi.

Stjórnin getur útnefnt heiðursfélaga fyrir einstök og verðskulduð störf í þágu félagsins, og skal það tilkynnt á aðalfundi. Útnefningunni skal fylgja sérstakt skjal henni til staðfestingar. Á sérstökum tímamótum getur stjórnin veitt félagsmönnum eða velunnurum félagsins heiðursmerki eða afreksmerki félagsins í samræmi við reglur sem um slíkt skuli gilda.

Stjórnin skal rækta samband við félaga og kynna þeim mikilsverð mál er varða starfsemi félagsins á félagsfundum, opnum stjórnarfundum eða á annan hátt.

13. gr.

Stjórn félagsins skal skipa í eftirtaldar nefndir: 

Mótanefnd

Vallarnefnd 

Aganefnd

Forgjafanefnd

Stjórnin getur skipað í fleiri nefndir ef hún telur þörf á vegna starfsemi félagsins.  

 

IV.  Aðalfundur

14. gr.

Aðalfundur hefur æðsta úrskurðavald í öllum málefnum félagsins. Hann skal halda í nóvember ár hvert. Á öðrum tíma ársins getur stjórnin boðað til almenns félagsfundar ef henni þykir ástæða til eða ef 1/10 skuldlausra félaga óska þess skriflega með rökstuðningi. Slíkan fund skal halda innan þriggja vikna frá móttöku slíkrar beiðni.

Aðalfund og aðra félagsfundi skal auglýsa með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá.  Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi þess. Tillögur til lagabreytinga sem og aðrar tillögur skal auglýsa a.m.k. tveimur vikum fyrir aðalfund.

Á félagsfundi skal kjósa fundarstjóra og ritara. Á félagsfundi ræður afl atkvæða afgreiðslu mála.

15. gr.

Aðalfundur er löglegur og ályktunarhæfur um öll málefni félagsins sé löglega til hans boðað. Afl atkvæða ræður úrslitum á fundum. Atkvæðisrétt hafa þeir félagar sem náð hafa 16 ára aldri og eru skuldlausir við félagið. 

Tvo þriðju hluta atkvæða þarf til að samþykkja lagabreytingar. 

Aðalfundur skal kjósa fundarstjóra og ritara eftir tillögu stjórnar.

Í fundarlok skal lesa upp fundargerðina og bera hana upp til samþykktar. Fundargerðin skal síðan undirrituð af fundarstjóra, fundarritara og viðstöddum stjórnarmönnum og skoðast hún sem rétt sönnunargagn um ákvarðanir fundarins.

16. gr.

Dagskrá aðalfundar skal vera:

Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.

Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.

Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning og hann borinn upp til samþykktar.

Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.

Tillögur sem borist hafa teknar til umræður og afgreiðslu.

Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár.

Kosning stjórnar og varamanna í stjórn, sbr. 10. gr.

Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.

Lögð fram fjárhagsáætlun næsta starfsárs.

Önnur mál.

Fundarstjóra og fundarritara er skylt að ganga frá fundargerð aðalfundar.


V. Ýmis ákvæði.

17. gr.

Reikningsár félagsins er frá 1. nóvember til og með 31. október ár hvert. Endurskoðaðir reikningar félagsins skulu lagðir fyrir aðalfund til samþykktar.

18. gr.

Komi fram tillaga um að félaginu skuli slitið skal hún tekin fyrir á sérstökum fundi sem stjórnin boðar til með sama hætti og aðalfund. Fundurinn er ályktunarhæfur ef minnst helmingur félagsmanna sækir fundinn og tillagan fær gildi ef 2/3 fundarmanna samþykkja hana.

Mæti ekki nægilega margir skal boða til nýs fundar og halda hann innan þriggja vikna.  Sá fundur er ályktunarhæfur um tillögu um slit félagsins sé hann löglega boðaður, enda þótt fyrrgreindri þátttöku verði ekki náð. Telst tillaga um slit félagsins þá samþykkt ef 2/3 fundarmanna samþykkja hana.

Sé félaginu formlega og löglega slitið skulu eignir þess renna til Félags bókagerðarmanna.

19. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla eldri lög félagsins úr gildi.

----------------------------

 

(Tillaga til laga félagsins lögð fyrir aðalfund þess 21. febrúar 2008

og var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.)

Hér er skjalið í PDF

 

Íslenskar getspá


17.01.2012

Kveðja í upphafi árs 2012 – fregnir af aðalfundi

Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa 2011 var haldinn 30. nóvember sl., og má segja að með honum hafi formlega lokið starfseminni klúbbsins á því ári sem nú er að ljúka.

15.11.2011

Dalbúi - Aðalfundur

AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA Sal Rafiðnaðarskólans, Stórhöfða 27, Grafarvogsmegin, miðvikudaginn 30. nóvember 2011 kl. 17:15 – 19:00

19.10.2011

Vetrargolf Dalbúa

Vetrargolf Dalbúa Velli golfklúbbsins Dalbúa hefur nú verið lokað eftir vertíð sumarsins, eins og þeir félagar hafa séð, sem hafa lagt leið sína í Miðdal undanfarið. Líkt og síðustu ár má þó búast við að félagar hafi áhuga á að spila völlinn í vetur, þegar veður leyfir, og á síðasta vetri mátti sjá þó nokkra félagsmenn fara hring á vellinum og þannig spila vetrargolf við oft ágætar aðstæður.

19.09.2011

Lindarmótið 17. september - úrslit

Síðasta mót sumarsins hjá golfklúbbnum Dalbúa fór fram laugardaginn 17. september í björtu og góðu veðri – eins konar stund milli vondra veðurdaga báðum megin við, eins og mótanefnd hafði raunar samið um við æðri máttarvöld. Þátttakendur voru alls 36 að þessu sinni, fullt á allar brautir, og góður endapunktur á góðum mótum sumarsins hjá klúbbnum.

Golfklúbburinn Dalbúi - info@dalbui.is | Miðdal-Laugarvatni | Sími í skála: 8930200 gd.dalbui@gmail.com